Stoðþjónusta fyrir fatlað fólk
Stoðþjónustu er ætlað að aðstoða fólk til sjálfstæðs heimilishalds, persónulega umhirðu og samfélagslegrar þátttöku. Einnig að aðstoða fólk t.a.m. við hæfingu, atvinnu og veita þeim sérhæfða ráðgjöf.
“Félagsleg liðveisla”
Félagsleg liðveisla er persónulegur stuðningur og aðstoð sem er ætlað að rjúfa félagslega einangrun og styrkja fólk til þátttöku í menningar- og félagslífi. Liðveisla er veitt fötluðum börnum frá 6 ára aldri, sem og fullorðnu fötluðu fólki.
Hægt er að sækja um þjónustu heim á formi félagslegrar heimaþjónustu og frekari liðveislu, hvort sem fólk býr í eigin íbúð, leiguíbúð á almennum markaði eða félagslegri leiguíbúð.
Fjölskyldur fatlaðra barna eiga kost á stuðningsfjölskyldu sem hefur það hlutverk að taka barnið í umsjá sína í skamman tíma til að létta álagi af fjölskyldu þess. Þörf fyrir þjónustu er metin út frá aðstæðum barns og fjölskyldu. Við matið er horft til fötlunar barnsins og umönnunarþarfar, sem og félagslegra aðstæðna fjölskyldunnar.
Í Hveragerði og Ölfusi er sótt um liðveislu í gegnum íbúagátt sveitarfélagana. Til þess þarf rafræn skilríki eða Íslykil (rafrænt umsóknareyðublað má finna hér að neðan ef viðkomandi er ekki með rafræn skilríki eða Íslykil).
Íbúagátt Hveragerðis
Íbúagátt Ölfus
Í Uppsveitum og Flóa þarf að sækja um liðveislu með rafrænum hætti á netfangið xxx@laugaras.is, hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér að neðan.
Reglur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings um liðveislu
Gjaldskrá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings vegna liðveislu
Skammtímadvöl
Skammtímadvöl er ætlað að veita fötluðum börnum og fullorðnum tímabundna dvöl til tilbreytingar eða til að létta álagi af aðstandendum vegna erfiðra heimilisaðstæðna, svo sem veikinda eða annars álags. Vistunin er því ýmist reglubundin eða veitt til ákveðins tíma og er dvalartíminn breytilegur eftir aðstæðum hvers og eins. Á þjónustusvæði Bergrisa er ein skammtímadvöl og er hún staðsett á Selfossi..
Í Hveragerði og Ölfusi er sótt um skammtímadvöl í gegnum íbúagátt sveitarfélagana. Til þess þarf rafræn skilríki eða Íslykil (rafrænt umsóknareyðublað má finna hér að neðan ef viðkomandi er ekki með rafræn skilríki eða Íslykil).
Íbúagátt Hveragerðis
Íbúagátt Ölfus
Í Uppsveitum og Flóa þarf að sækja um skammtímadvöl með rafrænum hætti á netfangið xxx@laugaras.is, hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér að neðan.
Reglur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings um skammtímadvöl
Gjaldskrá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings vegna skammtímadvalar
Akstursþjónusta
Markmið akstursþjónustu er að gera þeim , sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki, kleift að stunda nám, vinnu, hæfingu, sækja heilbrigðisþjónustu og njóta tómstunda. Haft er að leiðarljósi að aðstoða fatlað fólk til fullrar þátttöku í samfélaginu og sjálfstæðs lífs eins og kostur er hverju sinni.
Í Hveragerði og Ölfusi er sótt um akstursþjónustu í gegnum íbúagátt sveitarfélagana. Til þess þarf rafræn skilríki eða Íslykil (rafrænt umsóknareyðublað má finna hér að neðan ef viðkomandi er ekki með rafræn skilríki eða Íslykil).
Íbúagátt Hveragerðis
Íbúagátt Ölfus
Í Uppsveitum og Flóa þarf að sækja um akstursþjónustu með rafrænum hætti á netfangið xxx@laugaras.is, hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér að neðan.
Reglur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings um akstursþjónustu fatlaðra
Gjaldskrá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings vegna akstursþjónustu fatlaðra
NPA
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er aðstoð sem byggir á hugmyndafræði um sjálfstætt líf. Fólk sem notar NPA stýrir sjálft fyrirkomulagi þjónustunnar og ákveður hvaða aðstoð er veitt, hvernig hún er skipulögð, hvenær og hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Til að eiga rétt á NPA þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
-
Eiga lögheimili á starfssvæði skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings þegar stuðningur hefst.
-
Þurfa stuðning í meira en 15 klukkustundir á viku.
-
Vera með staðfesta fötlunargreiningu.
-
Vera orðinn 18 ára. Ef um barn er að ræða þurfa foreldrar að sækja um.
-
Búa sjálfstætt eða í foreldrahúsum.
-
Ef þú býrð í húsnæði fyrir fatlað fólk getur þú sótt um NPA ef stefnt er að flutningi í sjálfstæða búsetu.
Að sækja um NPA
Fyrsta skref er að panta viðtal við ráðgjafa hjá skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Þar er farið yfir stöðu þína og þarfir. Í framhaldinu er tekin sameiginleg ákvörðun um hvaða stuðningur hentar og umsókn undirrituð.
Umsókn um NPA skal fylgja staðfesting á fötlunargreiningu, sjálfsmat, örorkumat og SIS-mat ef við á.
Þegar undirrituð umsókn liggur fyrir er næsta skref formlegt mat á stuðningsþörf.
Matið tekur mið af stöðu þinni með tilliti til eftirfarandi þátta:
-
Færni, geta og styrkleikar
-
Félagslegar aðstæður og tengslanet
-
Virkni og þátttaka í samfélaginu
-
Hugsanlegar afleiðingar sem töf á stuðningi hefur
-
Annar stuðningur
